04. janúar 2008 klukkan 18:52
Aðeins 8. dagar til Ítalíu! Djöfull verður gaman.. er samt ekki enn byrjuð að finna fyrir mikilli tilhlökkun en að fara í tveggja vikna frí með fjölskyldunni er alltaf gaman. Við munum víst halda uppi síðu á meðan við erum úti og reyna að setja inn myndir eftir hvern dag. Þið verðið nú að vera dugleg að kíkja þangað inn, síðan er
www.italiuferd2008.central.is :) Verður ljúft að fá að sofa núna út án þess að vakna 6 sinnum á sama klukkutímanum við gellt frá henni pamelu..
Tölum aðeins um jólin.. þar sem ég hef voða lítið annað að gera nema bara blogga & letingjast í tölvunni vegna veikinda minna! Það var rosa gaman en hef aldrei fengið jafn lítið af gjöfum.. þetta gerist með aldrinum, nema fyrir fólk eins og Andreu sem á ömmu sem dekrar hana út í eitt hehe. Fékk samt góðar gjafir :) Hef held ég aldrei lennt í jafn leiðinlegri messu samt.. nema jú í fyrra þegar Cecil prestur var fjarverandi & einhver annar prestur kom & ákvað að breyta aðeins til og syngja svona rammfalskt í kirkjunni.. haha það var samt bara hrikalega fyndið.
Áramótin voru líka góð! Mér fannst þvílíkt gaman á balli.. skemmti mér konunglega, veit ekki með aðra? Aníta klárlega dansfélaginn minn ;) Það tók samt enginn myndir þarna sem er fúlt.. eða jú tinna tók en nennir ekki að setja þær á netið.. beyglan! Ég hefði verið svo dugleg en myndavélin mín er greinilega ekkert á leiðinni að verða búin í viðgerð sem er að gera mig brjálaða.. sakna hennar :(
Ég veit.. þessi síða er orðin helvíti dauð! Ég skellti inn einhverjum blandmyndum samt um daginn & ég á fullt eftir að setja inn. Allar myndir frá jólunum&áramótunum koma samt ekki fyrr en eftir ítalíu ferðina eða rétt fyrir því sonja er með myndirnar og stúlkan er farin til reykjavíkur svo þið verðið að bíða. En ég hendi inn kanski einhverjum myndum inn.. en þá líka einhverjum súrum myndum því ekkert hefur verið að gerast hér á seyðisfirði, ekkert frekar en vanalega.
við anika á litlu jólunum í 2. bekk eða e-ð, ýkt sætar :)Segjum þetta gott.. hef ekkert fleira óspennandi til að segja ykkur frá.. ykkur þeim sem nenntuð að lesa þetta! Væri líka ekkert leiðinlegra að fá komment á þetta blogg svona aðeins til að gleðja mig? Já viktor, farðu svo að gera e-ð.. settu inn myndir! Orðið pínu þreytt að halda þessari síðu uppi ein.
-sandraólafsd
sem er að drepast í kjaftinum!!